top of page
Transparent (1).png

Business Excellence - Framúrskarandi skipulagsheild

Staðnámskeið

Fyrir hverja er námskeiðið?

Stjórnendur og aðra sem vilja kynnast stjórnunarkerfum og aðferðafræði sem hönnuð hafa verið til að skipulagsheildir geti náð framúrskarandi árangri.


Hvert er markmið námskeiðsins?

Að þátttakendur kynnist mismunandi stjórnunarkerfum og aðferðafræði sem hönnuð hafa verið fyrir skipulagsheildir til að ná framúrskarandi árangri. Kynnt verða margvísleg stjórnunarkerfi og greint hvað þau eiga sameiginlegt og hvað gerir þau einstök. Aðferðafræði við mat á stjórnunarlegum þroska er kynnt og auk þess farið yfir aðra þætti sem rétt þykir að leggja áherslu á við rekstur skipulagsheilda svo ná megi framúrskarandi árangri. 


Á námskeiðinu er fjallað um:
  • Hvað eru stjórnunarkerfi?

  • Kynnt verða þekktustu stjórnunarkerfislíkönin:

    • EFQM Excellence Model

    • Baldrige Excellence Framework

    • Austrailian Business Excellence Framework

    • Total Quality Management Philosophy (TQM)

    • ISO 9001:2015 Quality Management System

  • Kynnt aðferðafræði við mat á stjórnunarlegum þroska skipulagsheildar

  • Að hvaða þáttum í rekstri skipulagsheildar þykir rétt að einbeita sér að til að ná framúrskarandi árangri

  • Mikilvægi vellíðanar á vinnustaðnum til að ná framúrskarandi árangri.

  • Hvernig stöndum við vörð um vellíðan á vinnustaðnum og hvernig eflum við hana

  • Samantekt í lok námskeiðs


Aðrar upplýsingar:

Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.


Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.


Verð er 75.000 kr. 


Næsta námskeið verður haldið þann 13. nóvember 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.

bottom of page