Um námskeiðið
Fyrir hverja er námskeiðið?
Starfsfólk sem sinnir eða er ábyrgt fyrir innri úttektum og aðra þá sem vilja bæta árangur og verklag við innri úttektir.
Hvert er markmið námskeiðsins?
Að þátttakendur kynnist aðferðafræði innri úttekta á stjórnunarkerfum í samræmi við staðal ISO 19011 Leiðbeiningar um innri úttektir stjórnunarkerfa. Tekið er mið af nýjustu útgáfu staðalsins ISO 9001 en námskeiðið gagnast einnig þeim sem eru með stjórnunarkerfi samkvæmt öðrum stöðlum svo sem IST 85, ISO 14000, ISO 17000, ISO 22000, ISO 27000 og ISO 45000. Markmiðið er að þátttakendur öðlist færni og þekkingu til að undirbúa, framkvæma og ljúka innri úttektum sem og að greina orsakir frábrigða og vinna að úrbótum.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Hvað eru innri úttektir?
Leiðbeiningar um innri úttektir og skilgreiningar - Staðallinn ISO 19011.
Kröfur ISO 9001:2026 og annarra stjórnunarstaðla um kerfisbundna rýni.
Gerð áhættumiðaðrar úttektaáætlunar (Risk based Audit program).
Skipulag innri úttekta (Audit plan).
Framkvæmd innri úttektar (Conducting the Audit).
Viðtalstækni í innri úttektum.
Framsetningu niðurstaðna og lokaskýrsla (Findings, Conclusions and Audit report).
Úrbætur/úrbótaáætlun (Corrective action plan, CAP).
Orsakagreiningu (Root Cause Analysis).
Eftirfylgni (Audit follow up).
Aðrar upplýsingar:
Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.
Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 Lead Auditor leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.
Verð er 75.000 kr.
Næsta námskeið verður haldið þann 18. september 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.
18. september 2026
7,0 klst.
Garðar Jónsson
Gæðastjóri, vottaður ISO 9001 Lead Auditor leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.
Nám:
M.Sc. í jákvæðri sálfræði (Applied Positive Psycology).
M.Sc. í altækri gæðastjórnun (Total Qality Management & Business Excellence)
Viðskiptafræðingur (Cand oecon)
.png)
