Um námskeiðið
Fyrir hverja er námskeiðið?
Stjórnendur og aðra sem vilja kynnast stjórnunarkerfum og aðferðafræði sem hönnuð hafa verið til að skipulagsheildir geti náð framúrskarandi árangri.
Hvert er markmið námskeiðsins?
Að þátttakendur kynnist mismunandi stjórnunarkerfum og aðferðafræði sem hönnuð hafa verið fyrir skipulagsheildir til að ná framúrskarandi árangri. Kynnt verða margvísleg stjórnunarkerfi og greint hvað þau eiga sameiginlegt og hvað gerir þau einstök. Aðferðafræði við mat á stjórnunarlegum þroska er kynnt og auk þess farið yfir aðra þætti sem rétt þykir að leggja áherslu á við rekstur skipulagsheilda svo ná megi framúrskarandi árangri.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Hvað eru stjórnunarkerfi?
Kynnt verða þekktustu stjórnunarkerfislíkönin:
EFQM Excellence Model
Baldrige Excellence Framework
Austrailian Business Excellence Framework
Total Quality Management Philosophy (TQM)
ISO 9001:2015 Quality Management System
Kynnt aðferðafræði við mat á stjórnunarlegum þroska skipulagsheildar
Að hvaða þáttum í rekstri skipulagsheildar þykir rétt að einbeita sér að til að ná framúrskarandi árangri
Mikilvægi vellíðanar á vinnustaðnum til að ná framúrskarandi árangri.
Hvernig stöndum við vörð um vellíðan á vinnustaðnum og hvernig eflum við hana
Samantekt í lok námskeiðs
Aðrar upplýsingar:
Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.
Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.
Verð er 75.000 kr.
Næsta námskeið verður haldið þann 13. nóvember 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.
13. nóvember 2026
7,0 klst.
Garðar Jónsson
Gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.
Nám:
M.Sc. í jákvæðri sálfræði (Applied Positive Psycology).
M.Sc. í altækri gæðastjórnun (Total Qality Management & Business Excellence)
Viðskiptafræðingur (Cand oecon)
.png)
