Um námskeiðið
Fyrir hverja er námskeiðið?
Mannauðsstjóra og aðra stjórnendur skipulagsheilda sem og alla þá er vilja öðlast þekkingu á hvernig standa megi vörð um og efla vellíðan á vinnustöðum.
Hvert er markmið námskeiðsins?
Að þátttakendur kynnist alþjóðlega viðurkennda staðlinum ISO 45003 um andlega heilsu og öryggi á vinnustaðnum og kynnist viðurkenndum aðferðum til eflingar vellíðanar á vinnustaðnum. Staðallinn lýsir stjórnunarkerfi sem ætlað er að tryggja árangur á tveimur megin sviðum, þ.e. annarsvegar forvarnir svo standa megi vörð um andlega heilsu starfsfólks á vinnustöðum og hinsvegar markvissar aðgerðir svo efla megi vellíðan. Staðallinn veitir mikilvægar leiðbeiningar um stýringu sálfélagslegra þátta svo sem, skýra forystu og væntingar, vöxt og þroska, samskipti og gagnkvæma virðinu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Kynntar verða viðurkenndar aðferðir til aukinnar vellíðanar á vinnustaðnum sem skila árangri og mæta kröfum staðalsins ISO 45003.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Hvað er ISO 45003.
Uppbygging staðalsins og meginmarkmið.
Kröfur staðalsins.
Hvernig standa megi vörð um vellíðan starfsfólks á vinnustöðum.
Aðferðafræði við sálfélagslegt áhættumat starfa og gerð forvarnaráætlunar.
Hvernig efla megi vellíðan starfsfólks á vinnustaðnum.
Hvað getur einstaklingurinn sjálfur gert til að efla sína vellíðan.
Ávinningur vellíðanar á vinnustaðnum, fyrir einstaklinginn og vinnustaðinn.
Mikilvægi þátttöku starfsfólks við mótun forvarna og eflingu vellíðanar.
Samantekt í lok námskeiðs
Aðrar upplýsingar:
Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.
Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi , fyrrum stjórnunarráðgjafi og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði.
Verð er 75.000 kr.
Næsta námskeið verður haldið þann 20. nóvember 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.
20. nóvember 2026
7,0 klst.
Garðar Jónsson
Gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi, fyrrum stjórnunarráðgjafi og sérfræðingur í jákvæðri sálfræði.
Nám:
M.Sc. í jákvæðri sálfræði (Applied Positive Psycology).
M.Sc. í altækri gæðastjórnun (Total Qality Management & Business Excellence)
Viðskiptafræðingur (Cand oecon)
.png)
