top of page
Transparent (1).png

Staðnámskeið

ISO 7101:23 Gæðastjórnununarkerfi á heilbrigðisstofnunum

Um námskeiðið

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu á hinum nýja gæðastjórnunarstaðli fyrir heilbrigðisstofnanir ISO 7101:2023 og færni til að vinna með slíkt kerfi á einn eð annan hátt.

Hvert er markmið námskeiðsins?

Að þátttakendur öðlist skilning á tilgangi gæðastjórnunarkerfis og þekki kröfur staðalsins ISO 7101:2023. Einnig að þátttakendur fái innsýn í gerð gæðastefnu og gæðamarkmiða í heilbrigðisþjónustu og hvernig rétt væri að standa að innleiðingu á gæðastjórnunarkerfi eða hverskyns breytingum á því í slíkri þjónustu. Auk þess fá þátttakendur þjálfun í gerð áhættumats sem er mikilvægur þáttur í öllum nútíma stjórnunarkerfum. Gert er ráð fyrir að þátttekendur geti verið talsmenn gæða- og umbótastarfs og miðlað þekkingu til annarra.


Á námskeiðinu er fjallað um:
  • Hvað er gæðastjórnunarkerfi og hvaða tilgangi þjóna þau.

  • Gæðastjórnunarstaðall fyrir heilbrigðisstofnanir, ISO 7101:2023, uppbyggingu hans og markmið.

  • Hvernig staðallinn ISO 7101 er frábrugðinn gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001.

  • Kröfur staðalsins.

  •  Árangursríka innleiðingu gæðastjórnunarkerfis á heilbrigðisstofnunum og hverskyns breytinga þess.

  • Gæðastefnu og markmið.

  • Gæðahandbók og tilgang hennar.

  • Aðferðafræði áhættumats - einn af lykilþáttum gæðastjórnunarstaðalsins fyrir heilbrigðisstofnanir.

  • Kerfisbundin rýni á gæðastjórnunarkerfinu.

  • Stöðugar umbætur.

  • Samantekt í lok námskeiðs.


Aðrar upplýsingar:

Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.


Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.


Verð er 75.000 kr. fyrir hvern þátttakanda.


Næsta námskeið verður haldið þann 26. nóvember 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.

26. nóvember 2026

7,0 klst.

Garðar Jónsson

Gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.

Nám:

  • M.Sc. í jákvæðri sálfræði (Applied Positive Psycology).

  • M.Sc. í altækri gæðastjórnun (Total Qality Management & Business Excellence)

  • Viðskiptafræðingur (Cand oecon)

bottom of page