top of page
Transparent (1).png

Staðnámskeið

Gæðastjórnunarstaðallinn - ný útgáfa ISO 9001:2026

Um námskeiðið

Fyrir hverja er námskeiðið?

Fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu á tilgangi gæðastjórnunarkerfis í skipulagsheildum og færni til að vinna með slíkt kerfi á einn eð annan hátt.

Hvert er markmið námskeiðsins?

Að þátttakendur öðlist skilning á tilgangi gæðastjórnunarkerfis og þekki kröfur staðalsins ISO 9001:2026. Einnig að þátttakendur fái innsýn í gerð gæðastefnu, gæðamarkmiða og hvernig rétt væri að standa að innleiðingu á gæðastjórnunarkerfi eða hverskyns breytingum á því. Auk þess fá þátttakendur þjálfun í gerð áhættumats sem er mikilvægur þáttur í öllum nútíma stjórnunarkerfum. Gert er ráð fyrir að þátttekendur geti verið talsmenn gæða- og umbótastarfs og miðlað þekkingu til annarra.


Á námskeiðinu er fjallað um:
  • Hvað eru gæðastjórnunarkerfiog hvaða tilgangi þjóna þau.

  • Nýjustu útgáfu Gæðastjórnunarstaðalsins, ISO 9001:2026, uppbyggingu hans og markmið.

  • Kröfur staðalsins.

  • Hvernig ný útgáfa staðalsins er frábrugðin þeirri eldri frá 2015.

  • Árangursríka innleiðingu gæðastjórnunarkerfis og hverskyns breytinga þess.

  • Gæðastefnu og markmið.

  • Gæðahandbók og tilgang hennar.

  • Aðferðafræði áhættumats - einn af lykilþáttum gæðastjórnunarstaðalsins.

  • Kerfisbundin rýni á gæðastjórnunarkerfinu.

  • Stöðugar umbætur.

  • Samantekt í lok námskeiðs.


Aðrar upplýsingar:

Lengd námskeið er einn dagur, 7,0 klst. Kennt er frá 08:30 - 16:00, hádegishlé er frá 12:00 - 12:30. Hádegisverður og kaffiveitingar eru innifaldar í verði námskeiðsins.


Leiðbeinandi er Garðar Jónsson, gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.


Verð er 75.000 kr. fyrir hvern þátttakanda.


Næsta námskeið verður haldið þann 2. október 2026 að Bíldshöfða 16, 110 Reykjavík.

2. október 2026

7,0 klst

Garðar Jónsson

Gæðastjóri, vottaður ISO 9001 leiðbeinandi og fyrrum stjórnunarráðgjafi.

Nám:

  • M.Sc. í jákvæðri sálfræði (Applied Positive Psycology).

  • M.Sc. í altækri gæðastjórnun (Total Qality Management & Business Excellence)

  • Viðskiptafræðingur (Cand oecon)

bottom of page